Keiludeildin heldur ár hvert veglegt páskamót. Mótið er opið öllum keilurum og er B mót sem fer inn í meðaltal KLÍ.
Keppt er í fjórum flokkum og eru verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í hverjum flokki auk aukaverðlauna.
Mótið hefur verið styrkt af velunnurum deildarinnar s.s. Toppveitingum og nú undanfarið af félagmanni ÍR-Keiludeildar Valdimar Guðmundssyni.