Bronsleikar ÍR

Bronsleikar ÍR eru haldnir að hausti ár hvert. Leikarnir eru til heiðurs Völu Flosadóttur sem vann til bronsverðlauna í stangarstökki á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000.

Á Bronsleikum er keppt í Fjölþraut barna sem samanstendur af þrautum sem reyna á styrk, snerpu, úthald og samhæfingu. Þrautirnar eru þróaðar sérstaklega fyrir þann aldur sem þær eru lagðar fyrir svo allir ættu að fá skemmtileg viðfangsefni við hæfi.

Tímasetning

Leikarnir árið 2026 verða haldnir í Laugardalshöll 3. október og hefst keppnin klukkan 9:30.

Keppendum verður raðað í hópa sem byggðir eru á félögum sem þeir koma frá en einnig verða settir saman hópar úr smærri félögum og einstaklingum.
Þann 2. október verða upplýsingar verða sendar á foreldra og/eða þjálfara liðsins sem skráir keppendurna. Þar verða upplýsingar um mætingu, rástíma og hvenær keppni lýkur hjá hverjum hópi. Hver keppnishópur má hafa 3 liðsstjóra með sér og hvetjum við félögin til að skipuleggja það vel.

Dagskrá Bronsleika

9:30  – 7 ára og yngri

10:40 – 8 – 9 ára

11:30 – 10 – 11 ára

*Aldur miðast við fæðingarár

7 ára og yngri

Fjölþraut barna – Börnin fara í 8 til 14 manna hópum í gegnum þrautabraut sem samanstendur af 6 þrautum. Upplýsingar um þrautir er að finna hér: Fjölþraut 2026

8 – 9 ára

Þríþraut – Börnin mynda 8 manna hópa og reyna sig í langstökki, skutlukasti og 60m hlaupi.

Tímataka verður í 60 metra hlaupi og  3 mældar tilraunir í langstökki og 2 í skutlukasti (2×2 köst).

10 – 11 ára

Fjórþraut – Börnin mynda 8 manna hópa og reyna sig í langstökki, kúluvarpi, 60m hlaupi og 600m hlaupi.

Í langstökki fá allir þrjú stökk og í kúluvarpi fá allir 2×2 köst (lengra mælt).

Athugið að aldursflokkar miðast við fæðingarár en ekki afmælisdag.

Skráning verður á  netskraning.is

Ef þjálfarar vilja hafa áhrif á hópaskiptingu eru þeir beðnir um að senda póst á irfrjalsar@gmail.com ekki síðar en þriðjudaginn 29. september kl 16:00.

Í Fjórþraut verður félögum raðað saman í hópa eins og kostur er.

Skráningu lýkur 2. október kl. 12:00 (á hádegi).

Fullt þáttökugjald frá 29. september 23:59

  • 9 ára og yngri – 6.800 kr
  • 10 – 11 ára – 7.300 kr

40% afsláttur af þáttökugjaldi frá 23.september – 29.september kl 23:59

  • 9 ára og yngri – 4.080  kr
  • 10 – 11 ára – 4.380 kr

60% afsláttur af þáttökugjaldi til 22.september kl 23:59

  • 9 ára og yngri – 2.720  kr
  • 10 – 11 ára – 2.920 kr

Þátttökuviðurkenning fyrir alla keppendur

irfrjalsar@gmail.com

Sjáumst á Bronsleikum ÍR!

Styrktaraðilar ÍR

Ábending á rekstrarstjóra

Hér er hægt að fylla út og þá mun reksrarstjóri fá beiðni um verkefnið.

Upplýsingar um þig