Íþróttaskólinn er í boði einu sinni í viku, haustönn frá september til desember og vorönn frá janúar til maí, ár hvert. Skólinn hefur aðsetur í íþróttahúsi Breiðholtsskóla og íþróttahúsinu í Austurbergi.
Best er að börnin séu berfætt og í þægilegum bol og buxum, ekki er þörf á sérstökum íþróttafatnaði. 2-3 ára börn eru saman í hóp og 4-5 ára saman.
Í Íþróttaskólanum eru leystar ýmsar þrautir þar sem börnin reyna á jafnvægi, fín- og grófhreyfingar, samhæfingu, líkamlegan þroska sem og félagslegan.
Þau læra að bera virðingu fyrir öðrum og vinna saman. Skynfærin þarf einnig að örva og samhæfa, í leikfimi sem þessari reynir á þau öll.
Vorönn 2020:
2-3 ára Breiðholtsskóli, laugardaga frá klukkan 09:00-09:45. Tímabil 06.02.2021- 15.07.2021. Verð fyrir önn 15.000.-
4-5 ára Breiðholtsskóli, laugardaga frá klukkan 09:45-10:30. Tímabil 06.02.2021- 15.07.2021. Verð fyrir önn 15.000.-
2-5 ára Austurberg, laugardaga frá klukkan 09:00-09:45. Tímabil 06.02.2021- 15.07.2021. Verð fyrir önn 15.000.-
Hægt er að skrá á námskeiðin hér