Íþrótta- og veislusalir til útleigu
Félagsaðstaða ÍR er leigð út fyrir fundi og ýmis konar samkomur.
Íþróttasalir eru til útleigu fyrir einstaklinga eða smærri hópa í íþróttahúsinu Skógarseli, Breiðholtsskóla og Seljaskóla.
Veislusalur er um 180 m² að stærð og er útbúinn fyrir 80 manns í sæti. Salurinn er tilvalinn til fundarhalda og veisluhalda af ýmsu tagi, er t.d. vinsæll fyrir fermingar og skírnarveislur. Hann er einnig hentugur fyrir ýmis konar leikfimi og aðra hreyfingu. Leigist aðeins til aðila sem eru 25 ára eða eldri.
Innifalið í útleigu eru borð, stólar og leirtau fyrir 80 manns. Í eldhúsi er ísskápur, laus hella, ofn, örbylgjuofn og uppþvottavél sem leigjandi hefur aðgang að. Ef leigjandi veldur einhvers konar tjóni greiðir hann fyrir það. Greiðsla fer fram áður en útleiga á sér stað. Nánari upplýsingar í til hægri á heimasíðunni undir “Veislusalur ÍR”.
Einnig er hægt að leita frekari upplýsinga á skrifstofu ÍR í síma 587 7080, netfang ir@ir.is
Skíðaskáli
Skíðaskálinn Hengill er til útleigu allt árið um kring, fyrir félagssamtök, vinnuhópa, skóla og alla aðra sem áhuga hafa. Skálinn sem er nýr og stórglæsilegur er í eigu skíðadeildar ÍR og Víkings. Hann rúmar í allt 90 manns í gistingu og þar er mjög góð eldunaraðstaða og tveir góðir matsalir sem hægt er að opna á milli. Upplýsingar um útleigu: skalanefnd@gmail.com
Með því að smella HÉR má finna upplýsingar um gistingu fyrir hópa.
Ef áhugi er fyrir leigu á aðstöðu hjá ÍR skal hafa samband við skrifstofu.
Frekari upplýsingar má nálgast hjá skrifstofu ÍR í síma 587 7080, netfang: ir@ir.is