TUFF-íþróttaverkefnið / skráning

image2

Markmið:
Markmið verkefnisins er að auka íþróttaþátttöku barna með sérstaka áherslu á börn og unglinga af erlendum uppruna og um leið að auðvelda þeim og foreldrum þeirra aðlögun að íslensku samfélagi.

Hverjir standa að verkefninu?
Reykjavíkurborg hefur valið Breiðholt sem vettvang fyrir þetta verkefni.  ÍR er einn þriggja megin framkvæmdaraðila ásamt Leikni og alþjóðlegu góðgerðarsamtökunum The Unity of Faiths Foundation (TUFF) sem staðið hafa að sambærilegum verkefnum víða erlendis.

Frítt sport í þrjá mánuði fyrir nýliða:
Börn sem ekki hafa tekið þátt í íþróttastarfi býðst að æfa frítt hjá ÍR og Leikni í þrjá mánuði, frá og með febrúar 2018.  Börn af erlendum uppruna eru boðin sérstaklega velkomin. Nýliðar koma inn í aldurstengda æfingarflokka sem fyrir eru í hverri íþrótt hjá ÍR.

Skráning:
Skráningarblað má nálgast hér. Blaðið þarf að fylla út og senda á netfangið ir@ir.is eða koma því til skila á skrifstofu ÍR, Skógarseli 12, 109 Reykjavík, þar sem við veitum frekari ráðgjöf ef þörf er á.

 

image3

Styrktaraðilar ÍR

X