Bronsleikar ÍR

Bronsleikar ÍR eru haldnir að hausti ár hvert. Leikarnir eru til heiðurs Völu Flosadóttur sem vann til bronsverðlauna í stangarstökki á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000.

Á Bronsleikum er keppt í Fjölþraut barna sem samanstendur af þrautum sem reyna á styrk, snerpu, úthald og samhæfingu. Þrautirnar eru þróaðar sérstaklega fyrir þann aldur sem þær eru lagðar fyrir svo allir ættu að fá skemmtileg viðfangsefni við hæfi.

Tímasetning

Leikarnir árið 2024 verða haldnir í Laugardalshöll 5. október og hefst keppnin klukkan 9:00.
Keppendum verður raðað í hópa sem byggðir eru á félögum sem þeir koma frá en einnig verða settir saman hópar úr smærri félögum og einstaklingum.
Þann 4. október verða upplýsingar verða sendar á foreldra og/eða þjálfara liðsins sem skráir keppendurna. Þar verða upplýsingar um mætingu, rástíma og hvenær keppni lýkur hjá hverjum hópi. Hver keppnishópur má hafa 3 liðsstjóra með sér og hvetjum við félögin til að skipuleggja það vel.

Flokkar og keppnisfyrirkomulag

Tímaseðill Bronsleika 2024

7 ára og yngri (2017- )

Fjölþraut barna – Börnin fara í 8 til 14 manna hópum í gegnum þrautabraut sem samanstendur af 6 þrautum.

8 – 9 ára (2015-2016)

Þríþraut – Börnin mynda 8 manna hópa og reyna sig í langstökki, skutlukasti og 60m hlaupi.

Tímataka verður í 60 metra hlaupi og  2 mældar tilraunir í langstökki og skutlukasti.

10 – 11 ára (2013-2014)

Fjórþraut – Börnin mynda 8 manna hópa og reyna sig í langstökki, kúluvarpi, 60m hlaupi og 600m hlaupi.

Í langstökki fá allir þrjú stökk og í kúluvarpi fá allir 4 köst og tvö lengstu köstin mæld.

Í fjórþrautinni er tekinn tími og árangur hvers og eins mældur og skráður inn í mótaforritið Þór.

Athugið að aldursflokkar miðast við fæðingarár en ekki afmælisdag.

Skráning

Skráning verður á  netskraning.is

Ef þjálfarar vilja hafa áhrif á hópaskiptingu eru þeir beðnir um að senda póst á irfrjalsar@gmail.com ekki síðar en miðvikudaginn 2. október kl 16:00. Í Fjórþraut verður félögum raðað saman í hópa eins og kostur er.

Skráningu lýkur 2. október kl. 12:00 (á hádegi).

Þátttökugjöld

9 ára og yngri: 3.500 kr til kl 22:00 – 29. september

10-11 ára: 4.000 kr til kl 22:00 – 29. september

Þáttökugjald hækkar í 5.500 kr. ef skráð er eftir kl.22:00 þann 29. september og til loka skráningar 3. október klukkan 12:00 (á hádegi). 

 

Verðlaun

Þátttökuviðurkenning fyrir alla keppendur.

Nánari upplýsingar og fyrirspurnir

irfrjalsar@gmail.com

 

Sjáumst á Bronsleikum ÍR!

Styrktaraðilar ÍR

X