ÍR og Leiknir úr Reykjavík mætast laugardaginn 26. nóvember nk., í árlegum minningarleik um Hlyn Þór Sigurðsson í EGILSHÖLL klukkan 15:30. Leikið verður í annað sinni í Egilshöll við kjöraðstæður.
Hlynur Þór, var 18 ára gamall þegar hann varð bráðkvaddur þann 25. nóvember 2009 á æfingu hjá ÍR, en hann iðkaði bæði knattspyrnu hjá félaginu ásamt því að þjálfa yngri iðkendur og gegna ýmsum sjálfboða störfum innan félagsins.
Hann gerði ekki bara marga frábæra hluti í þágu félagsins heldur var hann einnig virkur í félagslífi og duglegur námsmaður.
Frítt er inn á leikinn á laugardaginn, en fólki er frjálst að gefa framlag í minningarsjóð Hlyns.
Kt: 411209-0160
Banki: 0115-05-60550
Félögin hvetja sem flesta til þess að styrkja málefnið og um leið að sjá hörkuleik í Egilshöll á laugardaginn.