Jólanámskeið 2016

 Jólanámskeið 2016

Knattspyrnunámskeið fyrir iðkendur ÍR í 4., 5., 6. og 7.flokki karla og kvenna milli jóla og nýárs.

Þriðjudagur 27. des, miðvikudagur 28. des, fimmtudagur 29.des og föstudagur 30.des frá kl. 9-12 í Íþróttahúsi Seljaskóla.

Áhersla á leikgleði, móttöku á bolta, sendingar,  skotæfingar og ýmsar tækni og spilæfingar. Iðkendum er skipt upp eftir aldri og getu þannig að allir fái verkefni við sitt hæfi.

Þjálfarar:

Sigurður Þórir Þorsteinsson Íþróttafræðingur

– Yfirþjálfari knattspyrnudeildar ÍR, KSÍ A gráða

Kristján Gylfi Guðmundsson Íþróttafræðingur

– Þjálfari 4. og 6.flokks karla hjá ÍR, KSÍ B gráða + 5. stig

– Verð: 12.500 kr

– Takmarkaður fjöldi iðkenda

– Iðkendur mæta með hollt og gott nesti að heiman

– Leikmenn meistaraflokka ÍR kíkja í heimsókn

– Tilvalin jólagjöf fyrir knattspyrnuþyrsta iðkendur

– Skráning á www.ir.is.

– Skráning hefst 5.desember og lýkur 16.desember

 

jolanamskeid-2016

 

X