Barna- og unglingastarf

Yngri flokka starf ÍR er öflugt og fjölbreytt þar sem megináhersla er lögð á að skapa jákvætt og uppbyggilegt umhverfi fyrir börn og ungmenni í Breiðholtinu. ÍR leggur ríka áherslu á að allir iðkendur fái tækifæri til að njóta sín, læra undirstöðuatriði íþróttarinnar, bæta sig og mynda góð tengsl við félaga sína. Mikilvægt er að hlúa að bæði félagslegri og líkamlegri vellíðan barna og ungmenna, og er það rauður þráður í gegnum allt starfið.


Yfirþjálfari yngri flokka hjá ÍR er Halldór Arnarsson, sem ásamt reyndu þjálfarateymi vinnur markvisst að því að tryggja gæði og fagmennsku í þjálfuninni. Rekstrarstjóri yngri flokka er Kristján Ari Halldórsson, sem heldur utan um skipulag og daglegan rekstur starfsins. Yngri flokka starfið er eitt það stærsta á landinu með rúmlega 800 iðkendur sem taka þátt í fjölbreyttu og lifandi íþróttastarfi þar sem gleði, virðing og samvinna eru í forgrunni.

Styrktaraðilar ÍR

Ábending á rekstrarstjóra

Hér er hægt að fylla út og þá mun reksrarstjóri fá beiðni um verkefnið.

Upplýsingar um þig