KR hafði betur í gær gegn ÍR. KR sigraði 80:75 í fjórða leik liðanna og jafnaði 2:2 í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitil karla í körfuknattleik. Leikurinn var mjög jafn lengst af og í síðari hálfleik komst ÍR yfir í þriðja leikhluta en það stóð ekki lengi. KR náði aftur yfirhöndinni og höfðu forskot í síðasta leikhlutanum og tókst þeim að halda því.
Gríðarleg stemning var í Hertz-hellinum í Seljaskóla og búast má við áframhaldandi stuði á laugardaginn.
Við hvetjum alla ÍR-inga til að fjölmenna á laugardaginn og styðja strákana til sigurs.
Leikurinn fer fram í DHL-höllinni, Vesturbæ, kl: 20:00 laugardaginn 4. maí.
Áfram ÍR
Mynd:Vísir/vilhelm