Boðað er til aðalfundar keiludeildar ÍR fimmtudaginn 16. mars kl. 20:00 í sal ÍR heimilisins Skógarseli 12
Dagskrá fundarins
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins
- Lesnir og skýrðir rekstrar- og efnahagsreikningar fyrir síðasta almanaksár
- Lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár
- Kosinn formaður
- Kosnir 4 aðrir stjórnarmenn og tveir varamenn
- Kosnir fulltrúar og varafulltrúar á aðalfund félagsins
- Ákveðin æfingagjöld
- Önnur mál
- Tillaga stjórnar um breytingu á fyrirkomulagi greiðslna í milliriðla og úrslit keppna á vegum KLÍ.
Stjórn keiludeildar skorar á félagsmenn að mæta á fundinn og taka þátt í móta starfsemi deildarinnar.