Aðalfundur Keiludeildar ÍR

Boðað er til aðalfundar Keiludeildar ÍR miðvikudaginn 18. apríl kl. 20 í sal ÍR heimilisins Skógarseli 12.

Dagskrá fundarins

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins
  3. Lesnir og skýrðir rekstrar- og efnahagsreikningar fyrir síðasta almanaksár
  4. Lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár
  5. Kosinn formaður
  6. Kosnir 4 aðrir stjórnarmenn og tveir varamenn
  7. Kosnir fulltrúar og varafulltrúar á aðalfund félagsins
  8. Ákveðin æfingagjöld
  9. Önnur mál

Boðið er upp á léttar veitingar í lokin – Stjórn deildarinnar

X