Framkvæmdir eru hafnar við nýja frjálsíþróttavöll ÍR-inga við Skógarsel. Beltavél og tvær búkollur eru að störfum. Búkollurnar eru að keyra efni í manir vestan megin á vellinum. Efnið lítur út fyrir að vera þurrt, vel vinnanlegt og ekkert grunnvatn að sjá. Á næstu dögum verður einnig farið í það verkefni að leggja nýtt gervigras á svæðið.
Það eru svo sannarlega spennandi tímar framundan í uppbyggingu á ÍR svæðinu.
Búkollan sem vinnur að efnisflutningum.
Efnið lítur út fyrir að vera þurrt og ekkert grunnvatn sjáanlegt.