ÍR 17.04.2019 | höf: ÍR
Sumarnámskeið ÍR “SUMARGAMAN” er fyrir alla krakka á aldrinum 6-9 ára, þ.e. börn fædd 2010-2013.
Á námskeiðunum er lögð áhersla á hreyfingu, leikgleði, útivist og sköpun og geta börnin valið um tvær brautir: íþróttabraut eða lista- og sköpunarbraut.
Íþróttabraut: þátttakendur munu meðal annars stunda handbolta, fótbolta, körfubolta, fimleika og frjálsíþróttir. Einnig verður farið í ýmsar vettvangsferðir, svo sem ævintýraferðir, sundferðir og bæjarferðir, og munu báðar brautir fara saman í þær. Boðið verður einnig upp á danstíma hjá Dansgarðinum í Álfabakka þar sem lögð er áhersla á styrkjandi æfingar, leiki og teygjur.
Lista- og sköpunarbraut: þátttakendur munu meðal annars leggja stund á söng- og leiklist, dans og föndur. Einnig verður farið í ýmsar vettvangsferðir, svo sem ævintýraferðir, sundferðir og bæjarferðir, og munu báðar brautir fara saman í þær. Boðið verður einnig upp á danstíma hjá Dansgarðinum í Álfabakka þar sem lögð er áhersla á skapandi dans og spuna.
Námskeiðin fara fram á ÍR-svæðinu við Skógarsel 12, 109 Reykjavík. Helga Dagný Bjarnadóttir, ferðamálafræðingur og knattspyrnuþjálfari og Kristfríður Rós Stefánsdóttir, íþróttafræðinemi, munu hafa yfirumsjón með námskeiðunum.
Tímabil:
Námskeiðsvikur sumarið 2019
Heill dagur: Frá 9-16
Hálfur dagur: Frá 9-12 eða 13-16
Gæsla er í boði án endurgjalds fyrir og eftir námskeið frá 8-9, 16-17 og 12 -13 fyrir hálfsdags námskeiðin.
Verð:
Heill dagur: 13.000 kr.
Hálfur dagur: 8.000 kr.
Matargjald: 5.000 kr. (Valkvætt)
*Athugið að stjörnumerkt námskeið er fjórir dagar, 10.400 kr. fyrir heilan dag, 6.400 kr. fyrir hálfan dag og 4.000 kr. fyrir mat.
Systkinaafsláttur 10%