Salan á þorrablótið að hefjast!

Nú er kominn tími til að tryggja sér miða á stærstu veislu ársins. Þorrablót ÍR verður haldið hátíðlegt laugardaginn 16. janúar 2027 í Skógarseli.

Húsið opnar klukkan 19:00 og boðið verður upp á glæsilegan mat frá Lux veitingum. Stemningin verður engu lík en dagskráin er troðfull af frábæru tónlistarfólki.

Skemmtikraftar:

  • Siggi Gunnars (veislustjóri)
  • Stuðlabandið & Ragga Gísla
  • Herra Hnetusmjör
  • Emmsjé Gauti

Miðasala og verð:

Stakur miði kostar 16.900 krónur, en einnig er hægt að tryggja sér heilt borð fyrir 202.800 krónur. Miðasala hefst í dag, föstudaginn 6. nóvember klukkan 13:00 á miðix.is.

Ekki missa af fjörinu – tryggið ykkur miða!

Aðrar færslur

Ábending á rekstrarstjóra

Hér er hægt að fylla út og þá mun reksrarstjóri fá beiðni um verkefnið.

Upplýsingar um þig