ÍR jólapeysan er nú komin í sölu í vefverslun ÍR. Skemmtileg jólapeysa fyrir alvöru ÍR-inga og Breiðhyltinga – og salan fer vel af stað.
Peysan kostar 8.990 kr. og fæst í stærðum XXS til XXL. Upplag er takmarkað, svo það borgar sig að tryggja sér eintak sem fyrst.
Peysurnar koma til landsins um miðjan nóvember og kaupendur fá þá skilaboð um hvenær og hvar afhending fer fram.
Salan er á vegum knattspyrnudeildar ÍR.
Ljósmyndir: Bragi Freyr Gunnarsson
Áfram ÍR!