Saga Arnars Þórs Valssonar, eða Addó, er samofin sögu knattspyrnudeildar ÍR.

Hann er lifandi goðsögn í knattspyrnusögu ÍR. Arnar Þór Valsson, eða Addó, hefur helgað félaginu allt sitt líf sem leikmaður, þjálfari og stjórnarmaður. Fyrir ævilanga tryggð var hann útnefndur heiðursfélagi ÍR.

Í heimi nútíma knattspyrnu, þar sem leikmenn og þjálfarar flakka ört á milli liða, eru menn eins og Arnar Þór Valsson sjaldgæfir demantar. Hann er „One Club Man“ í orðsins fyllstu merkingu; maður sem hefur aldrei klæðst annarri treyju en þeirri bláu og hvítu.

Hetjurnar frá 1997 Ferill Arnars er samofinn einu stærsta afreki knattspyrnudeildarinnar. Hann var lykilmaður í liðinu sem vann sér sæti í efstu deild árið 1997. Þetta var tími þar sem ÍR-liðið var þekkt fyrir ótrúlega samstöðu, baráttu og liðsanda – gildi sem Arnar hefur borið með sér alla tíð síðan. Hann var leikmaðurinn sem gaf aldrei tommu eftir og leiddi með fordæmi.

Þjálfarinn sem stóð vaktina Eftir að skórnir fóru á hilluna tók við nýtt hlutverk. Arnar er leikjahæsti þjálfari í sögu ÍR. Hann tók við liðinu á erfiðum tímum og sýndi einstaka fórnfýsi. Það er til marks um karakter hans að fyrstu mánuðina sem hann þjálfaði liðið, gerði hann það í sjálfboðavinnu til að létta undir með félaginu fjárhagslega. Hann hefur byggt upp lið, alið upp unga leikmenn og innrætt þeim ÍR-hjartað.

„Þriðja barnið mitt“ Í dag starfar Arnar í meistaraflokksráði og er stjórn deildarinnar innan handar í stefnumótun og flóknum málum. Ástríða hans hefur ekkert dvínað með árunum. Hann hefur sjálfur komist svo að orði að ÍR sé „þriðja barnið sitt“. Þessi orð lýsa því best hversu djúpar rætur hann á í félaginu. Knattspyrnudeild ÍR væri einfaldlega ekki á þeim stað sem hún er í dag án framlags Arnars Þórs Valssonar.

Við óskum Addó innilega til hamingju með verðskuldaðan heiður.

Aðrar færslur

Ábending á rekstrarstjóra

Hér er hægt að fylla út og þá mun reksrarstjóri fá beiðni um verkefnið.

Upplýsingar um þig