ÍR 22.05.2018 | höf: Þráinn Hafsteinsson
Árleg úthlutun úr Magnúsarsjóði, menntunar- og afrekssjóði ÍR fer fram í byrjun júní. Opið er fyrir umsóknir til og með 31. maí 2018 og skal þeim skilað til Þráins Hafsteinssonar íþróttastjóra ÍR á skrifstofu félagsins. Umsækjendum er bent á að fylla út sérstakt umsóknareyðublað sjóðsins sem fylgir hér neðst í fréttinni.
Sjá nánar um markmið sjóðsins:
Markmið sjóðsins er að:
3.gr.
Úthlutun – skilyrði
Aðeins þeir aðilar sem iðka eða þjálfa innan vébanda ÍR geta sótt um í sjóðinn. Til þess að fá styrk úr sjóðnum verður íþróttafólk innan ÍR að hafa sannað sig í sinni íþróttagrein hjá félaginu og verða um leið að sýna þann áhuga sem þarf til að ná auknum árangri og vinna af heilum hug fyrir félagið. Í einstaklingsíþróttum þarf iðkandinn að hafi unnið til verðlauna á Íslandsmóti eða öðrum sambærilegum mótum í sínum aldursflokki. Iðkandi í hópíþrótt þarf a.m.k. að vera í æfingahópi meistaraflokks, eða vera í landsliðsúrtaki í sínum aldursflokki. Þjálfarar þurfa að búa að góðum faglegum grunni, mikilli reynslu og sýna mikinn áhuga og metnað á þjálfun.