Ólympíudagurinn haldinn hjá ÍR

Á hverju ári er haldið upp á Alþjóða Ólympíudaginn þann 23. júní um allan heim í tilefni af því að Alþjóða Ólympíunefndin (IOC) var stofnuð á þessum degi árið 1894. Hún fagnar því 130 ára afmæli sínu í ár.

Íþrótta-og Ólympíusambandið fagnaði deginum á fimmtudag með golfmóti Samtaka íslenskra Ólympíufara (SÍÓ) ásamt stjórn- og starfsfólki ÍSÍ og með börnum og unglingum í Breiðholti á föstudag.

Golfmótið fór fram á Bakkakotsvelli í Mosfellsdal og var spilað níu holu Texas scramble. Nokkrir fyrrum Ólympíufarar tóku þátt í mótinu, Gunnsteinn Skúlason, Stefán Gunnarsson, Ágúst Ögmundsson og Hilmar Björnsson sem tóku þátt í leikunum 1972 allir í handbolta, Steinar Birgisson sem tók þátt í leikunum 1984 í handbolta og Elsa Nielsen sem tók þátt í leikunum 1992 og 1996.

Á föstudaginn var deginum fagnað á frjálsíþróttasvæði ÍR í Breiðholti í samvinnu við Íþróttafélag Reykjavíkur (ÍR) og Suðurmiðstöð. Unglingar sem lokið hafa 8. bekk og stunda vinnu í Vinnuskólanum var boðin þátttaka fyrir hádegi en eftir hádegi voru þátttakendur börn á leikjanámskeiði ÍR. Hjá unglingunum voru sex ólíkar stöðvar, pokavarp, ringó, amerískur fótbolti, tímataka í spretti, hópeflisleikir og æfing sirkusatriða sem Jörgen Nilsson sá um að kenna. Um 80 unglingar voru mættir og voru þeir áhugasamir og stóðu sig að öllu leyti mjög vel. Í lokin voru grillaðar pylsur og allir fóru sáttir heim.

Eftir hádegi mættu krakkarnir af leikjanámskeiði ÍR, en þau voru tæplega 20 á aldrinum 6-9 ára og með þeim hópur virkra leiðbeinenda. Krakkarnir byrjuðu á að fara í leiki sem Jörgen stýrði og svo var þeim skipt á þrjár stöðvar, pokavarp, tímatöku í sprettum og æfingu sirkusatriða. Krakkarnir voru mjög áhugasöm og virk og stóðu sig með stakri prýi.
Starfsfók Fræðslu- og almenningsíþróttasviðs sá um skipulagningu og fékk aðstoð frá öðru starfsfóki ÍSÍ við að útfæra verkefni dagsins.

Fleiri myndir frá Ólympíudeginum 2024 má finna hér.

 

X