Frjálsíþróttavöllur:
Malbikun undir gerviefni er lokið. Sérfræðingar frá Mondo gerviefnisframleiðandanum vinna nú að því að leggja gerviefnið. Jarðvegur er kominn á svæðið sem verður sléttaður út og þökulagt í framhaldinu innan hlaupa- og stökkbrauta. Veðurfar á næstu vikum ræður því hvort næst að klára að leggja gerviefnið fyrir veturinn. Jarðval sf er verktakinn sem sér um framkvæmdina við völlinn.
Vallarhús:
Uppsteypu meginhluta vallarhússins við frjálsíþróttavöllinn er lokið. Þakplötusteypa er í undirbúningi og svo verður efri hæð hússins steypt á næstu vikum. Efri hæðin er aðeins yfir hluta jarðhæðar. Uppsteypu á að vera lokið í lok október. Geislasteinn er verktakinn sem sér um framkvæmdina við vallarhúsið.
Færsla fráveitulagna við ÍR-svæðið:
Vinna við að leggja nýja fráveitulögn umhverfis ÍR-svæðið á þrjá vegu hófst 7. ágúst. Lögnin sem liggur við lóðamörk ÍR-svæðisins að vestan, norðan og austan leysir af núverandi lögn sem liggur í gegnum ÍR svæðið og undir fyrirhuguðu knatthúsi ÍR við hlið núverandi gervigrasvallar. Um þessar lagnir flæðir vatn ofan úr Breiðholtshverfinu og endar í tjörn við Reykjanesbrautina vestan við ÍR-svæðið. Þaðan rennur vatnið í Kópavogslækinn og út í sjó. Áætluð verklok eru 31. janúar 2019. Óskatak ehf og Jarðbrú ehf eru verktakarnir sem sjá um framkvæmdina.
Tilboð í fjölnota/knatthús:
Í lok september verða opnuð tilboð í fjölnota/knatthús sem byggja á norðan við núverandi gervigrasvöll ÍR. Áætlað er að framkvæmdir við fjölnota/knatthús hefjist af fullum krafti þegar færslu á fráveitulögn líkur í janúar 2019.
.