Allt íþróttastarf ÍR lagt af til og með 19. október nk.

Allt íþróttastarf ÍR lagt af til og með 19. október nk.

 

Í ljósi nýrra tíðinda frá stjórnvöldum sem bárust okkur nú í dag verður allt íþróttastarf sett í hlé til og með 19. október nk.

Hlé verður gert á allri starfsemi ÍR frá deginum í dag og því verða engar æfingar á vegum félagsins síðar í dag né næstu daga.

Á þetta við um allt starf félagsins innandyra og utandyra í öllum aldursflokkum.

Öll íþróttahús félagsins verða jafnframt lokuð á meðan á hléinu stendur.

Skrifstofa félagsins verður áfram starfandi og geta félagsmenn og foreldrar/forráðamenn haft samband í síma eða tölvupósti eins og vanalega.

Þrátt fyrir að hlé verði gert á formlegu starfi félagsins hvetjum við alla ÍR-inga til að halda áfram að sinna andlegri og líkamlegri heilsu með fjölbreyttum hætti!

Jafnframt biðlum við til fólks að fara varlega og sinna persónulegum sóttvörnum eftir fremsta megni.

Áfram ÍR!

X