ÍR-ingar sem kepptu í Íslandsmeistaramóti fullorðinna í kumite laugardaginn 14. nóvember s.l. náðu glæsilegum árangri, lentu þeir allir í verðlaunasætum og lönduðu fyrsta Íslandsmeistaratitli ÍR í karate. Sverrir Ólafur Torfasson ÍR varð Íslandsmeistari í flokki karla +84 kg og var þetta hans fyrsti Íslandsmeistaratitill í fullorðinsflokki, Diego Valencia lenti í 2. sæti í sama flokki, Aron Anh Ky Huynh varð í 2. sæti í flokki karla -67 kg og Kristján Helgi Carrasco varð í 3. sæti í flokki karla -75 kg.
Sverrir Ólafur Torfasson varð í 2. sæti í opnum flokki karla og Kristján Helgi Carrasco varð í 3. sæti í sama flokki. ÍR varð Íslandsmeistari í liðakeppni karla. Í liðinu voru þeir Kristján Helgi Carrasco, Diego Valencia og Sverrir Ólafur Torfason. Þá varð ÍR í 2. sæti í heildarkeppni félaga.