Íþróttafélag Reykjavíkur óskar eftir framkvæmdastjóra.
Framkvæmdastjóri ÍR hefur umsjón með daglegum rekstri félagsins, fjármálum ásamt mannvirkjum. Jafnframt því að vera yfirmaður skrifstofu og starfsmanna ÍR. Framkvæmdastjóri leiðir þjónustu við deildir félagsins, starfsmenn og iðkendur.
Framkvæmdastjóri ÍR leikur lykilhlutverk á framkvæmd á stefnu ÍR sem starfrækir metnaðarfullt, faglegt og fjölbreytt íþróttastarf. Áhersla er lögð á að framkvæmdastjóri gegni leiðtogahlutverki og leggi sig fram við að hafa góð og jákvæð samskipti við alla ÍR-inga. Framkvæmdastjóri skal ávallt starfa af heillindum með hagsmuni félagsins að leiðarljósi.
Um fullt starf er að ræða. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í desember/janúar.
Umsóknarfrestur er til og með 14. nóvember n.k.
Tekið er á móti umsóknum í gegnum www.alfred.is og þarf að fylgja með ferilskrá og kynningarbréf þar sem skýrt er frá ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. https://www.alfred.is/starf/framkvaemdastjori-ir-2
Nánari upplýsingar um starfið veitir Vigfús Þorsteinsson, formaður félagsins, í gengum netfangið formadur@ir.is