Arnar Freyr Guðmundsson hefur framlengt við handknattleiksdeild ÍR og mun halda áfram störfum sem yfirþjálfari yngri flokka deildarinnar.
Eru þetta gleðifréttir fyrir okkur ÍR’inga enda mikilvægt skref til framtíðar sem styður við uppbyggingu og framtíðarsýn deildarinnar. Mikil fjölgun iðkenda var á síðasta tímabili og er ætlunin að byggja frekar undir það góða starf.
Yfirþjálfari hefur yfirumsjón með faglegu starfi yngri flokka handknattleiksdeildar og leiðir hann stefnumótunarstarf varðandi þjálfun. Er markmiðið að halda áfram að efla umgjörð starfsins í ÍR.
Þjálfarar handknattleiksdeildar gegna lykilhlutverki í því að skapa uppbyggilegan og heilbrigðan félagsanda og stuðla jafnframt að því að framkoma iðkenda sé félaginu ávallt til sóma sem og að sjá til þess að hver iðkandi fái verkefni við sitt hæfi þannig að allir njóti sín sem best.
Stjórn handknattleiksdeildar ÍR fagnar því mjög að Arnar hefur framlengt, Hefur komið í ljós undanfarið ár hversu mikilvægt starfið er og hefur skilað faglegum árangri. Einnig hefur sá metnaður sem Arnar hefur haft fyrir starfinu hjá ÍR ekki farið fram hjá neinum.