Bronsleikar ÍR eru haldnir að hausti ár hvert. Leikarnir eru til heiðurs Völu Flosadóttur sem vann til bronsverðlauna í stangarstökki á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000.
Á Bronsleikum er keppt í Fjölþraut barna sem samanstendur af þrautum sem reyna á styrk, snerpu, úthald og samhæfingu. Þrautirnar eru þróaðar sérstaklega fyrir þann aldur sem þær eru lagðar fyrir svo allir ættu að fá skemmtileg viðfangsefni við hæfi.
Tímasetning
Leikarnir árið 2026 verða haldnir í Laugardalshöll 3. október og hefst keppnin klukkan 9:30.
Keppendum verður raðað í hópa sem byggðir eru á félögum sem þeir koma frá en einnig verða settir saman hópar úr smærri félögum og einstaklingum.
Þann 2. október verða upplýsingar verða sendar á foreldra og/eða þjálfara liðsins sem skráir keppendurna. Þar verða upplýsingar um mætingu, rástíma og hvenær keppni lýkur hjá hverjum hópi. Hver keppnishópur má hafa 3 liðsstjóra með sér og hvetjum við félögin til að skipuleggja það vel.
Dagskrá
Dagskrá Bronsleika
9:30 – 7 ára og yngri
10:40 – 8 – 9 ára
11:30 – 10 – 11 ára
*Aldur miðast við fæðingarár
Flokkar og keppnisfyrirkomulag
7 ára og yngri
Fjölþraut barna – Börnin fara í 8 til 14 manna hópum í gegnum þrautabraut sem samanstendur af 6 þrautum. Upplýsingar um þrautir er að finna hér: Fjölþraut 2026
8 – 9 ára
Þríþraut – Börnin mynda 8 manna hópa og reyna sig í langstökki, skutlukasti og 60m hlaupi.
Tímataka verður í 60 metra hlaupi og 3 mældar tilraunir í langstökki og 2 í skutlukasti (2×2 köst).
10 – 11 ára
Fjórþraut – Börnin mynda 8 manna hópa og reyna sig í langstökki, kúluvarpi, 60m hlaupi og 600m hlaupi.
Í langstökki fá allir þrjú stökk og í kúluvarpi fá allir 2×2 köst (lengra mælt).
Athugið að aldursflokkar miðast við fæðingarár en ekki afmælisdag.
Skráning
Skráning verður á netskraning.is
Ef þjálfarar vilja hafa áhrif á hópaskiptingu eru þeir beðnir um að senda póst á irfrjalsar@gmail.com ekki síðar en þriðjudaginn 29. september kl 16:00.
Í Fjórþraut verður félögum raðað saman í hópa eins og kostur er.
Skráningu lýkur 2. október kl. 12:00 (á hádegi).
Þáttökugjöld
Fullt þáttökugjald frá 29. september 23:59
- 9 ára og yngri – 6.800 kr
- 10 – 11 ára – 7.300 kr
40% afsláttur af þáttökugjaldi frá 23.september – 29.september kl 23:59
- 9 ára og yngri – 4.080 kr
- 10 – 11 ára – 4.380 kr
60% afsláttur af þáttökugjaldi til 22.september kl 23:59
- 9 ára og yngri – 2.720 kr
- 10 – 11 ára – 2.920 kr
Verðlaun
Þátttökuviðurkenning fyrir alla keppendur
Nánari upplýsingar og fyrirspurnir
irfrjalsar@gmail.com
Sjáumst á Bronsleikum ÍR!