Handhafi Íslandsmets í hástökki í 50 ár

Í dag hefur Dr. Þórdís Lilja Gísladóttir íþróttafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands verið handhafi Íslandsmetsins í hástökki kvenna í 50 ár eða frá því að hún setti fyrsta Íslandsmet sitt 1.73m í Joensu í Finnlandi árið 1976.

Upphafið

Þórdís tók sín fyrstu skref í frjálsíþróttum í Þríþraut FRÍ og Æskunnar sem var árleg skólakeppni á árum áður. Í úrslitakeppni þríþrautarinnar lágu leiðir hennar og hins landskunna frjálsíþróttaþjálfara hjá ÍR Guðmundar Þórarinssonar saman. Þeirra samstarf var mjög gjöfult en Guðmundur lagði grunninn fyrir Þórdísi með æfingum sem hentuðu vel aldri hennar og þroska. Á unglingsárunum æfði Þórdís á veturna í ÍR-húsinu við Túngötu og í Baldurshaga undir stúku Laugardalsvallar og sumaræfingar fóru fram á Melavellinum og Laugardalsvelli.

Landsliðsferill og metið sem stendur enn

Á háskólaárunum keppti Þórdís árin 1981-1984 innanhússtímabil og utanhússtímabil í Bandaríkjunum og kom svo heim og tók utanhússtímabil á Íslandi og í Evrópu. Eftir háskólaferilinn fluttist Þórdís heim á ný og hélt áfram keppni af fullum krafti í 13 ár. Íslandsmet hennar sem enn stendur utanhúss setti hún í kast- og stökklandskeppni í Grimsby, Englandi árið 1990 aðeins ári eftir að hafa fætt sitt fyrsta barn og stökk þá 1.88m. Alls keppti Þórdís í 30 landskeppnum fyrir Íslands hönd á tímabilinu 1976-1999 og var auk þess fyrirliði landsliðsins síðustu 15 ár þess tímabils.

Stökk á 137 mótum yfir 1.80m 

Þó að Þórdísi hafi í raun verið kastað lítt reyndri 15 ára gamalli út í djúpu laugina með þátttöku á Ólympíuleikum hafði sú reynsla greinilega örvandi áhrif til frekari afreka. Eftir þá þolraun keppti hún á hæsta stigi, stórmótum, landskeppnum og opnum mótum um víða veröld næstu 23 árin. Árið 1979 stökk Þórdís fyrst íslenskra kvenna yfir 1.80m og stökk svo þá hæð eða hærra samfleytt til ársins 1997 að undanskildu árinu 1989 þegar hún gekk með sitt fyrsta barn. Á þessum sautján árum stökk hún samtals á 137 mótum yfir þá hæð og þar af á 24 mótum yfir 1.85m. Á keppnisferli sínum frá 1976-1999 keppti hún samtals á 114 mótum gegn Íslenskum keppinautum og sigraði alltaf með einni undantekningu en hún meiddist illa í þeirri keppni

Íslandsmethafi í 50 ár

Frá 1976 hefur Þórdís verið handhafi Íslandsmets kvenna í hástökki. Metið bætti hún eða jafnaði 13 sinnum og setti sitt síðasta met árið 1990 sem enn stendur. Í jafnlangan tíma hefur hún verið handhafi meistaramótsmetsins í hástökki á Meistaramóti Íslands utanhúss en það met jafnaði hún árið 1976 með stökki upp á 1.68m og núverandi meistaramótsmet setti hún árið 1982, 1.80m sem enn stendur

Aðrar færslur

Ábending á rekstrarstjóra

Hér er hægt að fylla út og þá mun reksrarstjóri fá beiðni um verkefnið.

Upplýsingar um þig