Kveðja frá Íþróttafélagi Reykjavíkur.
Fallinn er frá fyrrverandi formaður og heiðursfélagi Íþróttafélags Reykjavíkur ÍR. Þórir Lárusson gekk ungur til liðs við ÍR og átti langan og farsælan feril sem keppnismaður á skíðum. Þóri er sérstaklega minnst fyrir langt og farsælt starf að félagsmálum fyrir ÍR. Hann varð formaður skíðadeildarinnar 1957 aðeins tuttugu og eins árs gamall, hann átti sæti í aðalstjórn ÍR 1963-1967 og var formaður félagsins 1977-1985.
Í stjórnartíð Þóris var lagður grunnur að íþróttasvæði ÍR við Skógarsel, hann var formaður byggingarnefndar félagsins eftir að formannstíð hans lauk.
Má segja að Þórir hafi starfað sleitulaust fyrir ÍR til 2024, en það ár undirritar hann reikninga félagsins sem skoðunarmaður.
Þórir lá aldrei á liði sínu og var ávallt hægt að leita til hans með hin ýmsu mál er vörðuðu félagið. Hann sat einnig í fjölda nefnda og ráða fyrir íþróttahreyfinguna.
ÍR kveður góðan félaga og vottar fjölskyldu Þóris samúðar.
Fyrir hönd Íþróttafélags Reykjavíkur
Sigurður G Kristinsson
Kveðja frá Skíðadeild ÍR :
Þórir Lárusson var einn af máttarstólpum Skíðadeildar ÍR frá því hann gekk til liðs við félagið ungur að árum. Þórir var góður skíðamaður og keppti fyrir hönd félagsins í fjölda ára. Hann stundaði skíði fram á níræðisaldur.
Á árum áður þegar hafist var handa við byggingu skíðaskála félagsins í Hamragili og bætta aðstöðu í skíðabrekkunum lögðu félagsmenn á sig mikla sjálfboðaliðsvinnu. Við það myndaðist harður kjarni karla og kvenna sem margir hverjir urðu vinir fyrir lífstíð. Félagsstarfið var Þóri hugleikið, hann tók ungur að sér ýmis störf við stjórn deildarinnar og varð formaður hennar frá 1957 til 1964. Hann sat í stjórn Skíðasambands Íslands og var formaður Skíðaráðs Reykjavíkur, Þá tók við stjórnarseta í aðalstjórn ÍR.
Eldri félagar úr skíðadeilinni hafa verið duglegir að hittast og gera sér glaðan dag. Áður voru farnar margar skíðaferðir í Alpana og seinni ár einnig golfferðir. Það er á engan hallað þó sagt sé að Þórir hafi verið sá sem hélt utan um hópinn.
Það er ómetanlegt fyrir starfsemi eins og skíðadeildar ÍR að hafa notið krafta Þóris Lárussonar. Við sendum fjölskyldu Þóris samúðarkveðjur með innilegu þakklæti fyrir allt það óeigingjarna starf sem hann lagði að baki fyrir ÍR.
f.h. Skíðadeildar ÍR
Auður Björg Sigurjónsdóttir