1. umferð í AMF forkeppni í keilu lokið

1. umferð AMF 2016-2017 Top 3

Um helgina lauk 1. umferð í AMF forkeppninni 2016 til 2017. KFR liðar röðuðu sér í efstu sætin eftir milliriðilinn sem var spilaður á sunnudag og fór svo í úrslitum að Gústaf Smári Björnsson úr Keilufélagi Reykjavíkur sigraði. Vann hann Guðlaug Valgeirsson einnig úr KFR í úrslitaleik 246 gegn 201 og þar áður vann hann Skúla Frey Sigurðsson úr KFR með 259 gegn 249.

Ungir ÍR-ingar komust í milliriðilinn og enduðu þeir í 6. til 8. sæti.

Þessir hlutu stig í AMF forkeppninni:

Nafn AMF stig
Gústaf Smári Björnsson 12
Guðlaugur Valgeirsson 10
Skúli Freyr Sigurðsson 8
Dagný Edda Þórisdóttir 7
Guðjón Júlíusson 6
Hlynur Örn Ómarsson 5
Þorsteinn Hanning Kristinsson 4
Steindór Máni Björnsson 3
Bjarni Páll Jakobsson 2
Freyr Bragason 1

Sjá nánar úrslit og stöður í AMF.