Gull og brons á Swedish Kata Trophy 2019

Tveir keppendur frá karatedeild ÍR, þau Dunja Dagný Minic og Aron Anh Ky Huynh  voru meðal íslenskra keppenda sem unnu til sautján verðlauna á  opnu sænsku bikarmóti um helgina. Dunja Dagný Minic átti sérlega flottan sprett að gullinu í B-flokki 13 ára stelpna og Aron Anh Ky Huynh vann til bronsverðlauna í fullorðinsflokki.

Allt A-landsliðið og unglingalandsliðið tók þátt í mótinu, alls 21 keppandi, og unnu þau tvö gull, þrjú silfur og sjö brons. Einnig tóku ungir og efnilegir keppendur frá KFR og ÍR þátt í mótinu og unnu eitt gull, eitt silfur og þrjú brons. Íslensku verðlaunin urðu því alls sautján talsins. Íslenski hópurinn sækir síðan námskeið í kata með Shito Ryu þjálfaranum Mie Nakayama, sem haldið er í tengslum við mótið. Mie Nakayama, er þrefandur heimsmeistari í karate frá árunum 1982, 1984 og 1986.

Með í ferðinni eru  Helgi Jóhannesson, Landsliðsþjálfari í kata, Reinharð Reinharðsson formaður KAÍ og María Helga Guðmundsdóttir, fararstjóri.

frétt frá KAÍ

Mynd: Branka Aleksandarsdóttir
X