Við viljum þakka öllum sem komu á Íþróttahátíð í Breiðholti laugardaginn 6. september. Það var frábær stemning á Leiknis- og ÍR-svæðinu þar sem fjölskyldur og vinir nutu íþrótta, skemmtidagskrár og knattspyrnuleiksins.
Þátttakan var mjög góð og það gleður okkur að sjá hve margir tóku þátt, prófuðu nýjar íþróttir og nutu samverunnar.
Við hlökkum til að sjá ykkur aftur á næstu viðburðum!


