ÍR tekur þátt í Stóra plokkdeginum sunnudaginn 27. apríl og býður alla iðkendur, foreldra og félaga velkomna til að taka þátt í hreinsunarátaki í Breiðholtinu.
📍 Mæting er við ÍR-heimilið kl. 10:15 og við plokkum saman til kl. 12:15.
🌭 Að loknu plokki verða fríar pylsur í boði ÍR fyrir alla sem taka þátt!
Dagurinn verður formlega settur af Höllu, forseta Íslands, við Sorpu fyrr um morguninn og hvetjum við þá sem ætla sér þangað að koma beint til okkar í Skógarsel eftir setninguna.
Þetta er frábært tækifæri til að sýna samfélagslega ábyrgð, hreyfa sig og hittast í góðum anda. Tökum höndum saman fyrir hreinna og fallegra hverfi! 💙