ÍR-ingurinn Hákon Hjálmarsson hefur verið valin í 41 manna hóp sem tekur þátt í sameiginlegum körfuboltabúðum FIBA og NBA. Búðirnar bera nafnið „körfubolti án landamæra.“ þar sem ungir leikmenn frá öllum þjóðum koma saman.
Sagt er á heimasíðu FIBA að 41 bestu leikmenn evrópu komi saman og læri af leikmönnum og þjálfurum á hæstu stigum leiksins auk þess sem þeir keppa gegn bestu ungu leikmönnunum.
Meðal þjálfara í þessum búðum eru Cole Aldrich, Jerryd Bayless, Spencer Hawes, Andre Miller og Beno Udrih . Ásamt Aldrich, Bayless, Hawes, Miller og Udrih verða fyrrum NBA leikmennirnir Vladimir Radmanovic og Ronny Turiaf. Þá verða þjálfararnir Lionel Hollins Jamahl Mosley, Ryan Saunders og Joe Wolf einnig í búðunum.
Hákon er uppalinn hjá ÍR og hefur spilað með öllum yngri landsliðum Íslands. Í sumar lék hann með U18 landsliðinu á evrópumótinu og var á yngra ári þar. Hann var hinsvegar stigahæstur með U16 landsliðinu á evrópumótinu fyrir ári síðan.
http://karfan.is/read/2016-09-02/islenskur-leikmadur-valinn-i-korfuboltabudir-fiba-og-nba/
Sjá einnig frétt hér: