ÍR vantar áhugasamt og duglegt ungt fólk til starfa í sumar við sumarnámskeið og umhirðu vallarsvæðis félagsins.
Annars vegar eru störf fyrir 17-25 ára ungmenni og hins vegar störf fyrir unglinga á vinnuskólaaldri (9.-10. bekkur). Viðkomandi þurfa að hafa lögheimili í Reykjavík.
Áhugasamir hafi samband í síðasta lagi mánudaginn 5. mars n.k. á netfangið: thrainn@ir.is
Þráinn Hafsteinsson
Íþróttastjóri ÍR