Hrafnhild Eir sem hefur gegnt starfi íþróttastjóra ÍR, hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri félagsins.
Hún er mikill ÍR-ingur, hóf ÍR feril sinn í handbolta en sneri sér síðan að frjálsum íþróttum og hefur verið öflugur liðsmaður í frjálsíþróttadeild ÍR, bæði sem þjálfari og iðkandi og á hún að baki í gegnum tíðina nokkur Íslandsmet í hlaupagreinum. Hrafnhild er með BSc í Íþróttafræði, MS í Íþrótta- og heilsufræði auk BS í viðskipafræði.
Hrafnhild hefur síðustu vikur komið að undirbúningi fyrir endurskipulagningu og mun hún taka þátt í henni ásamt sérfræðingi og nefndum á vegum Aðalstjórnar ÍR.
Hrafnhild mun hefja störf á skrifstofu ÍR 1. júlí.
Við bjóðum Hrafnhild innilega velkomna í þetta spennandi, fjölbreytta og skemmtilega starf fyrir okkur ÍR-inga.