Handknattleiksdeild ÍR leitar að framkvæmdarstjóra

Handknattleiksdeild ÍR leitar að framkvæmdarstjóra
Við leitum eftir sjálfstæðum og öflugum einstaklingi til þess að leiða fjölbreytt verkefni deildarinnar í samstarfi við stjórn. Um er að ræða hlutastarf og kjörið tækifæri til þess að sækja sér víðtækrar og góðrar reynslu.
Helstu verkefni eru:
– Samningamál við leikmenn og þjálfara
– Skipulag fjáraflana
– Yfirumsjón yfir styrktaraðilum, gerð og sala auglýsinga auk styrktarsamninga
– Umsjón með meistaraflokkum félagsins og allt sem við kemur því.
– Samskipti við HSÍ, aðildarfélög sem og aðra hagsmunaaðila
– Önnur tilfallandi verkefni sem framkvæmdastjóra er unnt að vinna
Hæfniskröfur eru m.a. :
– Sterkir skipulagshæfileikar
– Góð hæfni í mannlegum samskiptum
– Þjónustulund og sveigjanleiki
– Menntun sem nýtist í starfi (kostur en ekki skilyrði)
Við hvetjum alla sem hafa áhuga til þess að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2025 og skulu umsóknir berast á netfangið kiddijoh@gmail.com.
Nánari upplýsingar veitir Kristinn Jóhannsson, formaður handknattleiksdeildar ÍR, í gegnum e-mail kiddijoh@gmail.com
Allar umsóknir eru meðhöndlaðar með trúnaði.

Aðrar færslur

Ábending á rekstrarstjóra

Hér er hægt að fylla út og þá mun reksrarstjóri fá beiðni um verkefnið.

Upplýsingar um þig