Guðmundur Ólafsson

Fallinn er frá góður félagi og mikill ÍR-ingur, Guðmundur Ólafsson. Guðmundur átti langan feril innan ÍR, fyrst sem keppandi og síðar sem öflugur félagsmaður. Hann starfaði mikið fyrir frjálsíþrótta- og körfuknattleiksdeildina og var gjaldkeri aðalstjórnar félagsins. Þegar frjálsíþróttadeildin gaf út blaðið „Þess skal getið sem gert er“ var tekið viðtal við Guðmund árið 1981. Þar kemur fram hvernig hann byrjaði í frjálsíþróttum sumarið 1965 (eftir að hafa æft hjá Gabor þjálfara veturinn áður). „Ég keypti mér spjót og labbaði með það á hverja æfingu heiman frá Laugaveginum út á Melavöll. Það var mikið kastað á Melavellinum á þessum árum og ríkti góður andi í hópi fjölmennum hópi kastaranna“. Þeir sem þekktu Guðmund þekktu hann sem hlaupara og komu þessar upplýsingar um kastarann Guðmund okkur skemmtilega á óvart. Guðmundur keppti í spretthlaupum og grindahlaupi á unglingsárum og var í Bikarliði ÍR. Eftir að Guðmundur kom heim frá framhaldsnámi í Svíþjóð tók hann þátt í brautarhlaupum, víðavangshlaupum og götuhlaupum. Hann var líka virkur í skokkhópi ÍR eftir að hann var stofnaður. Á síðustu árum hittumst við m.a. á styrktaræfingum eldri ÍR-inga í nýju fjölnotahúsi ÍR. Þá var gaman að rifja upp gamla tíma. Hann var eins og aðrir ÍR-ingar ánægður að sjá uppbygginguna hjá félaginu, glæsilegan frjálsíþróttavöll, fjölnotahús og stórt parkethús fyrir körfu- og handknattleik. Við samferðafólk Guðmundar í ÍR erum þakklát fyrir að hafa átt hann að félaga öll þessi ár og félagið sendir innilegar samúðarkveðjur til Láru og fjölskyldunnar allrar.

 

Helmingur keppenda í Kaldashlaupinnu u1982. Fremstur er Magnús Friðbergsson UIA, þá Guðmundur Ólafsson ÍR, Sigurjónsson IR, Gunnar Snorrason UBK og Ingvar Garðarsson HSK..

 

Aðrar færslur

Ábending á rekstrarstjóra

Hér er hægt að fylla út og þá mun reksrarstjóri fá beiðni um verkefnið.

Upplýsingar um þig