Knattspyrnudeild ÍR boðar til upplýsingafundar fyrir félagsmenn ÍR og aðra ÍR-inga varðandi mögulega sameiningu knattspyrnudeildar ÍR og Leiknis Reykjavíkur. Fundurinn fer fram næsta miðvikudag, þann 4. febrúar, í veislusal ÍR klukkan 20:00.
Starfshópur mun byrja fundinn á kynningu um verkefnið og að henni lokinni verður orðið laust fyrir spurningar eða ef menn vilja fá að tjá sig eitthvað nánar um verkefnið.
Við hvetjum ÍR-inga og félagsmenn ÍR að mæta og kynna sér þetta nánar og spyrja þær spurningar sem hvíla á ykkur.
Knattspyrnudeild ÍR