Á aðalfundi ÍR fimmtudaginn 16. apríl varð breyting í aðalstjórn ÍR.
Vigfús Þorsteinsson lét af formennsku eftir 5 ár, Hlynur Elísson, Hans Henttinen og Ólafur Gylfason gáfu ekki heldur kost á sér áfram.
Ný stjórn er því sem hér segir :
Sigurður Kristinsson formaður, Auður Sólrún Ólafsdóttir, Frímann Haukur Ómarsson, Jónatan Hróbjartsson, Kristín Aðalsteinsdóttir, Sigurlaugur Gíslason og Þorbjörg Jensdóttir.
Á myndinni má sjá Hafdísi Hansdóttur framkvæmdastjóra afhenda Vigfúsi, Ólafi, Hlyn og Hans blómvendi og þakka þeim gott starf fyrir hönd ÍR.