Meistaramót Íslands á ÍR vellinum.

Frjálsíþróttadeild Ármanns býður til Meistaramóts Íslands.

Mótið fer fram 28.-30. Júlí á ÍR vellinum í Skógarseli.

Mótið hefst á spjótkasti kvenna á föstudeginum kl. 17:30 og stendur fram til seinnipart sunnudags.

Það verður líf og fjör á ÍR vellinum seinustu helgina í júlí og verður gaman að fylgjast með öllu því frábæra frjálsíþróttafólki sem mun mæta til leiks.

 

X