Meistaramót Íslands 11 til 14 ára fer fram um helgina í Hafnarfirði. Keppendur á mótinu eru 315 og af þeim eru 46 úr röðum ÍR inga. Keppni hófst kl. 10 í morgun með undanrásum í 60 m hlaupi en tímaseðil mótsins og úrslit má finna hér.
Við hvetjum þá sem geta til að mæta í Kaplakrika og styðja við bakið á okkar fólki og óskum þeim góðs gengi og góðrar skemmtunar á mótinu.