Blekið heldur áfram að detta á samningsblöðin í Mjóddinni.
Þessa dagana er verið að endurskipuleggja alla samninga deildarinnar og um helgina bættust þær Lovísa Guðrún Einarsdóttir og Þórdís Helga Ásgeirsdóttir í hóp leikmanna sem rituðu nafn sitt undir langtímasamning við ÍR.
Stúlkurnar gengu báðar til liðs við félagið á liðnu vori, Lovísa er fædd árið 2000 og lék 16 leiki síðasta sumar og skoraði í þeim 7 mörk. Gefum Berta orðið: “Lovísa er frábær miðjumaður sem getur leyst allar stöðurnar í miðjuþríhyrningnum. Hún er með næmt auga fyrir spili og frábær skotmanneskja sem kemur með mikla ógn af miðjunni”.
Þórdís Helga lék alla leikina 17 fyrir ÍR í fyrra en fékk lítið að fara í sóknina til að skora en kom í veg fyrir því fleiri mörk á hinum enda vallarins.
Berti segir: “Þórdís hefur allt til að bera sem þarf til að verða öflugur varnarmaður. Hún er grjóthörð með góðan hraða og öflugan leikskilning og tilbúin að fórna sér algerlega fyrir málstaðinn.”
Maggi formaður er síkátur þessa dagana og það var á honum breitt bros við þessa undirritun.
“Þær Þórdís og Lovísa hafa frá fyrsta degi verið tilbúnar að leggja mikið á sig og gert heilmiklar kröfur til sín og samherjanna. Þeirra fótboltalega uppeldi var í Árbænum og það gleður okkur mjög að þær hafi valið það í fyrra að hoppa yfir Elliðaárdalinn til að klæðast hvítbláu og enn frekar nú þegar þær eru ákveðnar í að vera með í næstu skrefunum sem miðast að því að fara hærra og ná lengra.
Þær eru báðar svo sannarlega með hæfileikann og hugarfarið sem þarf til þess!”
Frekari frétta er að vænta af samningamálum ÍR á næstu dögum.