Styrktarsjóður ÍR styður við unga og framúrskarandi ÍR-inga á aldrinum 14–22 ára með styrkjum til æfinga, keppni og menntunar. Einnig eru veittir styrkir til þjálfara. Sjóðurinn byggir á grunni Magnúsarsjóðs og er í vörslu aðalstjórnar ÍR. Nánari upplýsingar, reglur og umsóknareyðublöð má finna í reglugerð sjóðsins og formið til að sækja um styrk er að finna hér.