Sterkasta keilumótið á Reykjavíkurleikunum til þessa
Keiludeild ÍR stendur fyrir keilukeppni á Reykjavíkurleikunum nú í 12. sinn um komandi helgi. Aldrei hafa fleiri svo sterkir keilarar komið til landsins vegna mótsins en von er á hátt í 40 erlendum keppendum til landsins. Arnar Davíð Jónsson, sem sigraði Evrópumótaröðina 2019 og varð í 5. sæti í kjöri Íþróttamann ársins 2019, kemur ásamt liði sínu Team Höganås frá Svíþjóð en alls eru þar á ferð um 8 keilarar. Fjórar konur sem keppa á atvinnumótaröðinni í Bandaríkjunum, þeirri stærstu í heimi, mæta í ár og auk þess kemur stór hópur frá SAS Bowling Club í Kaupmannahöfn en honum fylgir Jesper Agerbo sem hefur m.a. unnið Evrópukeppni landsmeistara og einstaklingskeppni á HM karlalandsliða svo eitthvað sé nefnt.
Keppni hefst á fimmtudaginn kemur kl. 10 með fyrsta riðlinum í forkeppninni en keppt verður í Keiluhöllinni Egilshöll. Alls verða leiknir 5 riðlar í forkeppninni í ár frá fimmtudegi fram til laugardags. 24 bestu keilararnir komast beint í úrslitakeppnina sem fer fram sunnudaginn 2. febrúar en auk þess verða 8 aukasæti í boði m.a. fyrir bestan árangur pilta og stúlkna undir 18 ára. Úrslit mótsins fara svo fram í beinni útsendingu á aðalrás RÚV sunnudaginn 2. febrúar og hefst útsendingin kl. 14:30.
Þeir erlendu keppendur sem koma eru meðal annars:
- Danielle McEwan – Bandaríkin 28 ára
Danielle er ein fremsta konan í keilunni þessa stundina. Hún varð í efsta sæti á heimslistanum 2019. Á hún fjölda titla og vann meðal annars US Open mót kvenna í Bandaríkjunum 2019 en það er eitt sterkasta mót heimsins á hverju ári hjá konunum. - Diana Zavjalova – Lettland 28 ára
Diana er keppandi á PWBA mótaröðinni í Bandaríkjunum. Hún hefur unnið 4 PWBA titla meðal annars 2 risatitla (major). Hún keppir einnig fyrir hönd lands síns á alþjóðavísu. - Daria Pajak – Pólland 26 ára
Daria Pajak er einnig keppandi á PWBA mótaröðinni í Bandaríkjunum. Hún varð í 2. sæti á US Open og tryggði sér þar um leið tilnefninguna nýliði ársins 2018. - Maria José Rodriguez – Kólumbía 31 árs
María er einnig keppandi á PWBA mótaröðinni. Hún á tvo titla og er annar þeirra risatitill. - Jesper Agerbo – Danmörk 40 ára
Jesper hefur áður komið á RIG og vann m.a. mótið 2018. Hann kemur ásamt konu sinni Rikke Agerbo sem hefur unnið mótið tvisvar. Jesper er landsliðsmaður Dana. Hann hefur m.a. orðið Evrópumeistari landsmeistara 2016 og sigraði einnig einstaklingskeppnina á HM sama ár. Jesper er einn fremsti keilari Danmerkur.
Þessir erlendu gestir keppa hér við íslensku keilaranna. Auk Arnars Davíðs má geta Gunnars Þórs Ásgeirssonar Íslandsmeistara 2019 auk allra landsliðsmanna og kvenna okkar Íslendinga.
Aðgangur að Keiluhöllinni Egilshöll er opin alla keppnisdaga og eru áhorfendur velkomnir til að fylgjast með.
Allar upplýsingar um mótið má finna á vefsíðu þess www.rigbowling.is
Streymt verður frá öllum riðlum mótsins á Fésbókarsíðu mótsins www.facebook.com/rigbowling