Verðlaunahátíð ÍR 2018

Verðlaunahátíð ÍR verður haldin fimmtudaginn 27. desember,  kl. 17:30 í ÍR-heimilinu.

Íþróttakona og íþróttakarl hverrar deildar innan ÍR fyrir árið 2018 fá viðurkenningar.  Úr þessum hópi tilnefnds íþróttafólks deilda hefur aðalstjórn valið íþróttakonu ÍR  og íþróttakarl ÍR 2018 sem verða heiðruð á hátíðinni.

Við sama tækifæri verða sautján sjálfboðaliðar heiðraðir með silfurmerki félagsins og þrír sjálfboðaliðar heiðraðir með gullmerki fyrir óeigingjarnt starf í þágu þess á undanförnum árum.

Fögnum frábærum árangri ÍR-inga á árinu 2018.

Allir ÍR-ingar velkomnir.

X