Silfurleikar ÍR er haldnir í nóvember ár hvert. Mótið var fyrst haldið árið 1996 og hét þá Haustleikar ÍR. Nafninu var breytt árið 2006 til að minnast þess að 50 ár voru þá liðin frá því að ÍR-ingurinn Vilhjálmur Einarsson vann silfurverðlaun í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourn í Ástralíu. Með Silfurleikum vilja ÍR-ingar minnast þessa mikla afreks og þrístökk skipar þar veglegan sess eins og vera ber. Silfurleikar ÍR eru fyrir 17 ára og yngri.
Tímasetning og staðsetning
Mótið er haldið í 30. sinn í Laugardalshöll þann 21. nóvember 2026 og stendur frá 9:00 – 18:00.
Dagskrá - Drög
- 4. okt – Skráning opnar
- 4. nóv – 23:59 – Skráningargjald hækkar
- 16. nóv – 23:59 – Skráningargjald hækkar
- 19. nóv
- 12:00 – Frestur til afskráninga rennur út
- Endanlegur tímaseðill gefinn út
- 20. nóv
- 10:00 – Skráningafrestur rennur út
- Upplýsingapóstar sendir út á keppendur
- 21. nóv
- 09:00 – Keppni í flokki 8-9 ára hefst
- 09:30 – Keppni í flokkum 10-12 ára hefst
- 10:30 – Keppni lýkur hjá 8-9 ára
- 11:30 – Keppni í flokkum 13-17 ára hefst
- 12:00 – Keppni í flokkum 10-11 ára lýkur
- 14:30 – Keppni hjá 7 ára og yngri hefst
- 15:00 – Keppni hjá 12 ára lýkur
- 15:30 – Keppni hjá 7 ára og yngri lýkur
- 18:00 – Keppni lýkur
Keppnisfyrirkomulag og flokkar
Í flokki 7 ára og yngri er keppt í fjölþraut barna. Þrautin samanstendur af 6 mismunandi greinum. Skipt er í hópa, sem fara saman í gegnum þrautirnar, eftir félögum. Hverjum hópi fylgir amk einn liðsstjóri sem getur verið foreldri eða þjálfari.
Áhersla er á leikgleði og góða samveru í þroskandi þrautum sem reyna á snerpu, úthald og styrk ásamt því að kenna grunnfærni sem nýtist í öllum greinum frjálsra íþrótta.
Þríþraut
- 200 m
- Kúluvarp (2 x 2 köst)
- Langstökk (3 stökk)
Fjórþraut
- 60 m
- Langstökk (3 stökk)
- Skutlukast (2 x 2 köst)
- 600 m
Fimmtarþraut
- 60 m
- Þrístökk (3 stökk) – 5 og 7 m plankar í boði
- Hástökk
- Piltar: 106 – 113 – 118 – 123 – 128 – 133 – 136 – …
- Stúlkur: 100 – 107 – 112 – 117 – 123 – 128 – 131 – …
- Kúluvarp (3 köst)
- 600 m
- 60 m
- 200 m
- 600 m (13 ára) / 800 m (14-17 ára)
- 60 m grind
- Hástökk
- P13: 118 – 125 – 130 – 135 – 138 – …
- S13: 113 – 120 – 125 – 130 – 133 – …
- P14: 125 – 132 – 139 – 144 – 149 – 152 – …
- S14: 119 – 126 – 133 – 138 – 143 – 146 – …
- P15-17: 135 – 142 – 149 – 154 – 159 – 162 – …
- S15-17: 130 – 137 – 142 – 147 – 150 – …
- Þrístökk
- 13-14 ára – 7 og 9 m planki (4 stökk)
- 15 ára og S16-17 – 7 og 9 m planki (3+3 stökk)
- P16-17 – 9 og 11 m planki (3+3 stökk)
- Kúluvarp
- 13-14 ára – 4 köst
- 15-17 ára – 3+3 köst
Skráning og þátttökugjöld
Skráningagjöld eru í þremur þrepum.
- 4. október – 4. nóvember: 60% afsláttur
- 5. nóvember – 16. nóvember: 40% afsláttur
- 17. nóvember – 20. nóvember: Fullt gjald
Skráningagjöld
- 9 ára og yngri – 7.875 kr.
- 10-12 ára – 9.450 kr.
- 13 ára og eldri – 7.875 kr. + 1.890 kr. á grein
Afskráningar
Hægt er að afskrá keppendur til kl. 12.00 fimmtudaginn 19. nóvember. Afskráningar sendast á irfrjalsar@gmail.com, setjið “Afskráning – Fullt nafn keppanda” í efni (e.subject) póstsins og upplýsingar um reikningsnúmer og kennitölu ef greitt var með öðru en kreditkorti.
Athugið að við endurgreiðum að hámarki 40% af fullu gjaldi.
Skráningu lýkur eftir
Verðlaun
Allir þátttakendur 11 ára og yngri fá þátttökuverðlaun. Í flokki 12 ára fá 10 stigahæstu verðlaun. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í flokkum 13 – 17 ára.
Veitingasala
Veitingasala verður við innganginn á meðan á mótinu stendur. Þar verður hægt að kaupa hressingu á sangjörnu verði.
Nánari upplýsingar og fyrirspurnir
irfrjalsar@gmail.com