Magnúsarsjóður styrkir afreksfólk og þjálfara ÍR

Í gær úthlutuðu ÍR-ingar í ellefta skipti styrkjum úr Magnúsarsjóði, menntunar- og afrekssjóði ÍR.  Að þessu sinni bárust 23 umsóknir frá 9 deildum félagsins.  Alls fengu fulltrúar frá átta deildum félagsins úthlutað styrkjum að upphæð kr. 1.350.000 samtals  sem hér segir:

  • Frjálsíþróttadeild            kr. 350.000
    Til endurmenntunar þjálfara
    Til afreksuppbyggingar vegna þátttöku í EM í frjálsum 2018
    Til sex afreksmanna deildarinnar
  • Handknattleiksdeild      kr. 250.000
    Til styrktar unglingalandsliðmönnum karla og kvenna í  U20 ára landsliðum Íslands
  • Körfuknattleiksdeild     kr. 250.000
    Til styrktar unglingalandsliðmönnum karla og kvenna í U20, U18 og U16 landsliðum Íslands
  • Knattspyrnudeild            kr. 150.000
    Til afreksuppbyggingar í 3. og 2. flokki karla og kvenna
  • Keiludeild                          kr. 100.000
    Til afreksuppbyggingar vegna þátttöku í Evrópumótaröð og heimsbikarmótum 2018 afreksmanna deildarinnar.
  • Júdódeild                           kr. 100.000
    Til afreksuppbyggingar vegna þátttöku í landsliðsverkefnum og alþjóðlegum mótum í júdó 2018.
  • Karate                                  kr. 100.000
    Til afreksuppbyggingar vegna þátttöku í landsliðsverkefnum, æfingabúðum og alþjóðlegum mótum í karate 2018.
    Til endurmenntunar þjálfara
  • Fimleikar                            kr. 50.000
    Til endurmenntunar þjálfara

Um úthlutunina nú
Í sjóðsstjórn eiga sæti Leifur Magnússon, fulltrúi aðstandenda Magnúsar Þorgeirssonar, Reynir Leví Guðmundsson gjaldkeri aðalstjórnar ÍR og Þráinn Hafsteinsson íþróttastjóri ÍR.  Leifur Magnússon sonur Magnúsar Þorgeirssonar sem sjóðurinn er kenndur við, Ingigerður Guðmundsdóttir formaður ÍR og Reynir Leví Guðmundsson gjaldkeri aðalstjórnar ÍR afhentu styrkina.  Sjá myndir.

Um Magnúsarsjóð
Magnúsarsjóður ber nafn Magnúsar Þorgeirssonar (f. 1902, d. 1983), en hann  var fyrsti Íslandsmeistarinn í fimleikum þegar  fyrst var keppt um þann titil í einstaklingskeppni 1927. Sjóðurinn var stofnaður með framlagi afkomenda Magnúsar Þorgeirssonar  í tilefni 100 ára afmælis ÍR og að 80 ár voru liðin frá því að Magnús varð fyrsti Íslandsmeistarinn í fimleikum.   Magnús átti mjög farsælan feril innan ÍR og meðal viðurkenninga sem hann hlaut fyrir sitt framlag má nefna gullkross ÍR 1962 og stórriddarakross 1972. Árið 1977 var Magnús kjörinn heiðursfélagi ÍR.  Sjóðurinn hefur það hlutverk að styðja við bakið á afreksstefnu ÍR með því að styrkja þjálfara, íþróttamenn og sérstök verkefni innan félagsins, allt með því markmiði að stuðla að enn betra íþróttastarfi innan ÍR. Veitt er úr sjóðnum einu sinni á ári en frá því 2008 hafa styrkveitingar úr sjóðnum numið samtals 11.450.000 króna.

 

2018-06-18 21.31.24 - Copy 2018-06-18 21.30.02 - Copy 2018-06-18 21.32.58 2018-06-18 21.32.10 - Copy 2018-06-18 21.37.11 2018-06-18 21.35.53

X