ÍR-Keiludeild leggur metnað sinn í að þjálfarar deildarinnar séu sem best menntaðir í þjálfunarfræðum. Á það bæði við um þjálfaranámskeið ÍSÍ sem og sértæk keiluþjálfunarstig. Deildin hefur á að skipa nokkra þjálfara með þar til gerð réttindi.
Breyting var gerð á þjálfarahóp og skipulagi deildarinnar haustið 2024. Yfirþjálfari er Adam Pawel Blaszczak EBF Level III. Yfirþjálfari sér um skipulag þjálfunar og starfsemi félagsins. Honum til halds og trausts eru svo aðrir þjálfarar sem annarsvegar koma að tæknilegri þjálfun og hinsvegar grunnþjálfun.
Þálfarar deildarinnar eru:
- Adam Pawel Blaszczak – Yfirþjálfari – Tæknileg þjálfun- EBF Level III, USBC Silver (Bandaríkin)
- Stefán Claessen – Tæknileg þjálfun – EBF Level III og Level 1 Instructor
- Þórarinn Már Þorbjörnsson – Framhaldshópur – EBF Level III
- Geirdís Hann Kristjánsdóttir – Grunnhópur EBF Level I
- Daníel Ingi Gottskálksson – Grunnhópur
- Hörður Ingi Jóhannsson – Fullorðnir – EBF Level II, SBF Level III (Svíþjóð), USBC Silver
- Laufey Sigurðardóttir – Grunnhópur EBF Level II
- Halldóra Í Ingvarsdóttir – Grunnhópur EBF Level I
- Aðrir þjálfarar eru kallaðir til t.d. sem gestaþjálfarar
Innan deildarinnar eru aðrir sem m.a. hafa lokið allt frá EBF Level I til EBF Level III sem er hæðsta gráðan innan European Bowling Federation, EBF.
Hafir þú einhverjar spurningar sem þú vilt koma á framfæri við þjálfara deildarinnar þá getur þú sent póst á yfirþjálfarann hér (enskumælandi) eða formann keiludeildar.