Hafþór byrjar vel á HM 2017 í keilu

Í gær hófst keppni í karlaflokki á HM í Las Vegas.  Keppt var í einstaklingskeppni karla. Til leiks voru skráðir 213 keppendur.

Strákunum okkar voru flestir smá stund að finna taktinn í dag í þeim erfiðu aðstæðum sem eru í mótinu.  Hafþór Harðarson spilaði best af Íslendingunum í dag. Hann spilaði 1247 sem gera 207,83 í meðaltal.  Þetta setur Hafþór í 26. sæti og í frábæra aðstöðu upp á framhaldið.  Þegar leikið hefur verið í einstaklingskeppni, tvímenning, þrímenning og fimm manna liðum komast 24 efstu keilararnir í svokölluð Master úrslit og því er stað Hafþórs gagnvart þeim úrslitum góð eftir spilamennsku dagsins.

Í dag, mánudag, kl. 9:00 leika 4 efstu karlarnir og 4 efstu konurnar til úrslita í einstaklingskeppninni og síðan hefst tvímenningskeppni karla og er leikið í tveimur riðlum, kl. 11:20. og 16:00

Í tvímenning leika eftirtaldir saman:

  • Gunnar Þór Ásgeirsson og Hafþór Harðarson kl. 11:20
  • Gústaf Smári Björnsson og Skúli Freyr Sigurðsson kl. 11:20
  • Jón Ingi Ragnarsson og Arnar Davíð Jónsson kl. 16:00

Öll úrslit og annað frá mótinu er hægt að skoða á heimasíðu mótsins.

X