ÍR fer í Erreà

ÍR hefur samið við Errea á Íslandi um að lið félagsins leiki í búningum Errea næstu 6 ár. Samningurinn tekur gildi þann 1. September.

 

Vigfús Þorsteinsson formaður ÍR : Félagið fór af stað síðasta sumar að skoða búningamál og var í sambandi við fjölmarga aðila. Á endanum var ákveðið að fara í samstarf við Errea og verða þeir einn af okkar stærstu styrktaraðilum á samningstímanum.

Það er mikil ánægja í félaginu að hafa náð samning við Errea, þetta eru er gæðavörur og mikið vöruúrval , við væntum mikils af þessu samstarfi.

Errea mun sjá um keppnis- og æfingafatnað ÍR ásamt öðrum vörum sem í boði verða fyrir allar deildir nema frjálsíþróttadeild ÍR sem er undanskilin þessum samningi.

Nýir keppnisbúningar og aðrar vörur verða kynntir fljótlega en vinna við hönnun á nýjum keppnistreyjum er þegar hafin.

 

ÍR vill nota tækifærið og þakka Jakosport fyrir gott samstarf síðastliðin ár.

 

Bergþór Þorvaldsson, vörustjóri Erreà á Íslandi : Erreà er stolt af því að hefja samstarf með ÍR og hlakkar til að styðja við öflugt íþróttastarf þessa sögulega félags.

Erreà er ítalskt íþróttavörumerki sem hefur sérhæft sig í hönnun og framleiðslu á hágæða keppnis- og æfingafatnaði fyrir íþróttafélög um allan heim síðan 1988. Allur fatnaður Erreà er framleiddur í Evrópu úr Oeko-Tex vottuðum efnum – sem tryggir skaðlausa og ábyrga framleiðslu. Merkið sameinar ítalska hönnun, gæði og þægindi við sérsniðnar lausnir sem eru þróaðar í nánu samstarfi við félögin sjálf.

 

Á myndinni handsala Vigfús Þorsteinsson formaður ÍR og Bergþór Þorvaldsson vörustjóri Erreà á Íslandi samninginn, með þeim á myndinni er (t.v.) Kristján Finnbogason frá Erreà og (t.h.) frá ÍR, Krstinn Þór Steingrímsson formaður körfuknattleiksdeildar, Arnar Freyr Guðmundsson stjórnarmaður handknattleiksdeildar og Brynjar Már Bjarnason formaður knattspyrnudeildar ÍR

Aðrar færslur

Ábending á rekstrarstjóra

Hér er hægt að fylla út og þá mun reksrarstjóri fá beiðni um verkefnið.

Upplýsingar um þig