Bakarameistaramótið

Bakarameistaramótið er yngri flokka mót sem ÍR heldur tvisvar á ári, í Marsmánuði og í nóvember. Mótið er haldið í upphituðu knatthúsi okkar ÍR-inga fyrir 8.-, 7.- og 6. flokk í bæði karla- og kvennaflokki. Hvert lið leikur 5 leiki á mótinu og allir þeir sem taka þátt fá svo glaðning þegar þau hafa lokið keppni. 

Bakarameistarinn er aðalstyrktaraðili mótsins. Á mótinu sjálfu er hægt að kaupa sér dýrindis bakkelsi og sætabrauð frá Bakarameistaranum í sjoppunni okkar sem er staðsett á annarri hæð knatthússins. 

Nánari upplýsingar er hægt að finna á Facebook síðu mótsins eða í gegnum tölvupóstinn mot@ir.is.

Styrktaraðilar ÍR

Ábending á rekstrarstjóra

Hér er hægt að fylla út og þá mun reksrarstjóri fá beiðni um verkefnið.

Upplýsingar um þig